Stjórn Vina Vatnajökuls úthlutar styrkjum árlega. Auglýst hefur verið eftir styrkumsóknum frá byrjun ágúst til loka september. Úthlutun styrkja hefur verið í desember ár hvert.  

Leiðbeiningar fyrir umsækjendur:

Leiðbeiningar fyrir umsækjendur um styrki

1. Hvað styrkja samtökin?

VINIR VATNAJÖKULS eru hollvinasamtök Vatnajökulsþjóðgarðs. Hlutverk samtakanna er að afla fjár til að styrkja  rannsóknir, kynningar- og fræðslustarf sem stuðlar að því að sem flestir geti notið náttúru og sögu Vatnajökulsþjóðgarðs.

 Vinirnir vilja setja í forgang verkefni sem stuðla að:

  • Aukinni þekkingu almennings á náttúru og sögu Vatnajökulsþjóðgarðs
  • Samspili byggðarlaga innan þjóðgarðsins
  • Aukinni fræðslu og rannsóknum í Vatnajökulsþjóðgarði og grenndarsamfélagi hans
  • Samspili útivistar, menningar og Vatnajökulsþjóðgarðs
  • Tengslum barna og unglinga við náttúruna
  • Auknum skilningi umheimsins á mikilvægi Vatnajökulsþjóðgarðs og einstakri náttúru hans á heimsvísu
  • Eflingu samkenndar um mikilvægi Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir nærliggjandi byggðir og alla landsmenn
  • Sjálfbærri ferðaþjónustu

 

2. Hvað styrkja samtökin ekki?
  • Almennan rekstrarkostnað stofnana, félaga eða fyrirtækja

  • Einstaklinga vegna greiðslu skólagjalda, námsdvala eða skólaferðalaga


3. Hverjir geta sótt um styrk?

Einstaklingar, samtök/tengslanet og bæði einkareknar og opinberar stofnanir, geta sótt um styrki. Umsækjendur mega búa hvort heldur er innan eða utan Íslands.

Þegar fleiri en einn aðili standa að verkefni, er það umsjónaraðili verkefnisins sem sækir um styrkinn, ekki einstakir aðilar að verkefninu.


4. Veitir sjóðurinn styrki til verkefna sem unnin eru reglulega?

VINIR VATNAJÖKULS styrkja fyrst og fremst einstök verkefni. Þ.e. verkefni sem ekki eru endurtekin reglulega eða hafa verið unnin áður. Ef um endurtekin verkefni er að ræða t.d. árlega viðburði mun úthlutunarnefnd meta í hverju tilfelli hvort styrkja eigi verkefnið.


5. Hvenær og hvernig er sótt um?

Umsækjendur fylla út rafrænt umsóknareyðublað á vefsíðu samtakanna. Umsókn skulu fylgja gögn með greinagóðri lýsingu á verkefninu og rökstuðningur á því hvernig það uppfyllir markmið VINA VATNAJÖKULS. Jafnframt skal fylgja umsókn, verk- og kostnaðaráætlun, sem og tilskilin leyfi þegar við á. Umsækjendur geta látið öll gögn og upplýsingar sem þeir telja að séu umsókn sinni til framdráttar, fylgja. Úthlutunarnefnd samtakanna getur kallað eftir frekari munnlegum eða skriflegum skýringum á umsóknum.

Stjórn VINA VATNAJÖKULS auglýsir eftir umsóknum um styrki í dagblöðum og á vefsíðu samtakanna. Að jafnaði skal úthlutað úr sjóðnum einu sinni á ári. Stjórn VINA VATNAJÖKULS getur ákveðið hverju sinni í auglýsingu, hvers konar verkefni hljóti styrki.

Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 2. október 2011.

6. Er hægt að sækja um styrk til sama verkefnis oftar en einu sinni?

Hafi verkefni fengið synjun um styrk frá samtökunum, stendur umsækjendum til boða að sækja aftur um styrk fyrir umrætt verkefni. Einungis má sækja tvisvar um styrk fyrir sama verkefnið. Ákvörðun stjórnar um styrkveitingu er ekki hægt að kæra, né verður henni breytt.


7. Hvernig eru styrkir veittir?

Styrkir eru greiddir út í tveimur áföngum. Helmingur upphæðar við formlega afhendingu styrkja og helmingur þegar styrkþegi skilar lokaskýrslu til samtakanna. Ef um háa styrki er að ræða geta samtökin tekið ákvörðun um að fjölgað áfangagreiðslum.


8. Hver eru fjárhagsleg skilyrði?

Eigin fjárfesting

Samtökin styrkja verkefni fyrst og fremst að hluta og því eru styrkir almennt ekki hærri en 50% af heildarkostnaði verkefnis. Öll verkefni verða því að útvega fjármagn eftir öðrum fjármögnunarleiðum eða leggja til eigið fé. Meta má vinnuframlag til fjár að því marki sem samtökin telja raunhæft til þess að hægt sé að vinna verkefnið. Umsókn skal innihalda útreikninga á eigin vinnuframlagi í meðfylgjandi fjárhagsáætlun.

Stjórn og/eða framkvæmdastjóri Vina Vatnajökuls hefur eftirlit með því, að styrkur sé notaður samkvæmt upplýsingum í umsókn. Styrkþega er skylt að kynna framkvæmdastjóra stöðu verksins, sé þess óskað og afhenda umbeðin gögn samtökunum að kostnaðarlausu.


9. Hver er tímarammi á framkvæmd verkefnis?

Verkefnið skal framkvæma innan tólf mánaða frá því að styrkveiting er samþykkt. Möguleiki er að sækja um verkefni til tuttugu og fjögurra mánaða, ef slíkt verkefni er samþykkt þá þarf styrkþegi að skila inn skýrslu eftir fyrstu  12 mánuðina og sækja um fyrir seinna 12 mánuðina við næstu úthlutun  Ef skilyrði um tímaramma verkefnis eru ekki uppfyllt getur stjórn samtakanna endurkallað styrk.  Hægt er að sækja um frest á verklokum til skrifstofu samtakanna. Umsókn þar að lútandi þarf að vera skrifleg og rökstudd. Stjórnin og/eða framkvæmdastjóri getur óskað eftir áfangaskýrslum, ef þurfa þykir. Hægt er að svipta umsækjanda styrk, telji stjórnin, að verkið sé ekki unnið í samræmi við umsókn og innsend gögn.                                                                                                                                                                                                            

10. Birting

Upplýsingar um umsækjendur, veitta styrki og lokaskýrslur eru opinber gögn. Þau má birta á vefsíðu samtakanna sem og annarsstaðar. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að birta merki (lógó) Vina Vatnajökuls á öllu efni sem samtökin styrkja. Reglur um meðferð merkis Vinanna má sjá hér á vefsíðu samtakanna undir „Merki Vina Vatnajökuls“. Vina Vatnajökuls skal getið í allri umfjöllun um þau verkefni sem Vinirnir styrkja. Styrkþegi sem ákveður að þiggja styrk samtakanna skal gerast Vinur Vatnajökuls.


11. Samningur um styrkveitingu

Þegar styrkur er veittur skrifa fulltrúi VINA VATNAJÖKULS og styrkþegi undir samning sem kveður á um gagnkvæmar skyldur styrkþega og samtakanna í samræmi við ofangreindar reglur.


12. Verkaskipting faghópa

 Umsóknir eru metnar af hópum sérfræðinga og er það umsækjenda að velja matshóp sem hentar best þeirra umsókn. Samstarf er á milli hópa þannig að ef umsóknir tengjast hugsanlega fleiri en einum hópi þá geta umsóknir verið metnar af fleiri faghópum en einum. Umsækjendur velja sjálfir þann faghóp sem þeir telja að henti best til mats á viðkomandi umsókn.

Faghópar: Rannsóknir – Kynning - Fræðsla

Rannsóknir

Faghópur með þekkingu á rannsóknarvinnu og úrvinnslu rannsóknargagna tekur til umfjöllunar verkefni sem varða: Náttúru-, félagsfræði- og mannfræðirannsóknir. Fleiri gerðir rannsókna geta fallið undir þennan flokk.

Kynning

Hópur aðila með þekkingu á hönnun kynningarefnis, vali markhópa og markaðssetningu mun fjalla um umsóknir í þessum flokki.

Fræðsla

Faghópur með þekkingu á fræðslugildi, gerð og framsetningu fræðsluefnis metur umsóknir í þessum flokki.




Senda grein


Umsókn um styrk Vina Vatnajökuls 2011

Grunn upplýsingar:

Tegund verkefnis:

Stutt lýsing á verkefni:

(texti hámark 150 orð) Nánari lýsing send sérstaklega í pósti eða tölvupósti.

Gerið grein fyrir eftirfarandi:

(texti hámark 1000 orð)

  1. Hvert er markmið verkefnisins?
  2. Hver er markhópurinn?
  3. Hvernig er áætlað að ná til markhópsins?
  4. Hvernig styður verkefnið við markmið og áherslusvið Vina Vatnajökuls?
  5. Eru líkur á að verkefnið skapi verðmæti eða hagnýta afurð fyrir Vatnajökulsþjóðgarð og/eða grenndarsamfélag hans
  6. Á hvaða formi verða niðurstöður verkefnisins: Bók, myndefni, skýrsla, bæklingur, margmiðlun...?
  7. Hver mun eiga og /eða nýta sér niðurstöður verkefnisins og með hvaða hætti?
  8. Gera þarf grein fyrir birtingu niðurstaðna og kynningu á þeim.

Er haft samráð við aðra um verkefnið?
Nýtur verkefnið annarra styrkja og þá hverra?

Tilgreinið aðila:

Eftirtalin gögn þurfa að fylgja umsókn:



Gerð er krafa um að séð sé fyrir endann á heildarfjármögnun verkefnisins eða þeim verkhluta, sem sótt er um styrk til.

Við mat á umsóknum mun fyrst og fremst litið til rannsókna- og/eða fræðslu- og/eða kynningargildis verkefnis.

Við ákvörðun um styrkveitingu mun tekið tillit til þess hvort ætla má að áætlanir um kostnað, fjármögnun og framvindu verkefnis séu raunhæfar.

Atrið sem mikilvægt er að hafa í huga:

  1. Nauðsynlegt er að stilla lengd umsóknar í hóf. Umsókn um minni verkefni þarf ekki að vera eins viðamikil og umsókn fyrir stærri verkefni.
  2. Nauðsynlegt er að fylgja leiðbeiningunum hér fyrir ofan.
  3. Ef umsókn er ekki unnin í samræmi við ofangreindar leiðbeiningar og mikilvægar upplýsingar vantar þá verður umsókninni hafnað, án þess að gefa umsækjendum kost á að senda inn leiðréttingar eftir að umsóknarfrestur er liðinn.
  4. Það verður ekki gefinn kostur á því að verkefnisstjórar geti mætt fyrir stjórn eða fagráð til að útskýra verkefnið nánar.
  5. Umsóknin verður eingöngu metin á grundvelli þeirra gagna sem afhent verða.


  6. (Til að fyrirbyggja ruslpóst)


Hér getur þú tekið þátt!


Þetta vefsvæði byggir á Eplica