Umsögn Tryggva Felixsonar um Leiðsögn um Vatnajökulsþjóðgarð
"Hjörleifur setur Vatnajökulsþjóðgarð á heimskortið"
Tryggvi Felixson, ráðgjafi hjá Norðurlandaráði og fyrrum framkvæmdastjóri Landverndar fer fögrum orðum um nýútkomna bók Hjörleifs Guttormssonar, Leiðsögn um Vina Vatnajökuls:
"Lýsingar á einstökum svæðum eru gagnorðar og draga fram það helsta, og þær kveikja áhuga á að komast á staðinn og upplifa það sem Hjörleifur lýsir. Þá hefur bókin kafla með almennum fróðleik um plöntur, dýralíf og jarðfræði sem er gagnleg til að skilja samhengið í gangverki náttúrunnar. Bókin setur hlutina í sögulegt samhengi, kemur inn á þjóðfræði og útskýrir hlutverk þjóðgarða. Þannig eykur hún skilning á gildi og nauðsyn náttúruverndar, og setur íslenska náttúruvernd í stærra samhengi. Ljósmyndirnar eru góðar og kort eru vönduð. Þetta er hið gagnlegasta og vandaðasta rit sem setur Vatnajökulsþjóðgarð ekki bara á Íslandskortið, heldur einnig á heimskortið. Já ég segi heimskortið, því bókin kemur út samtímis á þremur tungumálum; íslensku, ensku og þýsku. Þetta er ómetanlegt framlag til að efla útvist og ferðalög, og auka skilning á mikilvægi náttúruverndar."
Umsögn Tryggva má lesa í heild sinni hér.

