5.8.2010

Hlauptu fyrir VININA í Reykjavíkurmaraþoni þann 21. ágúst næstkomandi

Allir styrkir renna til gerðar fræðsluefnis fyrir börn

Það fé sem safnast fyrir VINANNA í Reykjavíkurmaraþoni 2010 rennur óskipt til gerðar fræðsluefnis fyrir börn um Vatnajökulsþjóðgarð. VINIRNIR munu tvöfalda upphæðina sem safnast til að gefa börnum á Íslandi tækifæri til að fræðast um þá þjóðargersemi sem Vatnajökulsþjóðgarður er.Með þekkingu vaknar virðing barnanna fyrir þjóðgarðinum sem mun stuðla að verndun hans til framtíðar. Á vefnum www.hlaupastyrkur.is geta hlauparar sett inn myndir af sér og sagt frá því hversvegna þeir hafa valið að hlaupa fyrir tiltekið góðgerðafélag. Áheit er hægt að greiða með kreditkorti auk þess er hægt að heita á hlaupara með því að senda sms skilaboð.

Til að hefja söfnun þurfa hlauparar að fara inná vefinn hlaupastyrkur.is og velja „nýskráning“. Þá fá þeir tilboð um að setja inn mynd af sér og segja hversvegna þeir hlaupa fyrir tiltekið málefni. Hægt er að safna áheitum í tveimur flokkum; sem boðhlaupslið eða sem einstaklingur sem tekur þátt í maraþoni, hálfmaraþoni, 10 km hlaupi eða 3 km skemmtiskokki. Það er von Vina Vatnajökuls að allir þeir sem unna náttúru Íslands vilji styrkja gerð fræðsluefnis fyrir börnin sem munu erfa landið.

Senda grein


Hér getur þú tekið þátt!


Þetta vefsvæði byggir á Eplica