24.8.2010

Hreindýrum fækkar

Eftirlitsflug yfir svæði 9 sýndi 113 dýr

Umhverfisstofnun hefur bannað alfarið hreindýraveiðar á syðsta veiðisvæðinu, svæði 9, í kjölfar talningar. Veiðileyfisgjöld verða endurgreidd, að því er fram kemur á vef stofnunarinnar.

Eins og fjallað var um í Fréttablaðinu nýlega hefur hreindýrum á svæðinu fækkað verulega. Í eftirlitsflugi seint í júlí fundust aðeins 113 dýr, en heimilt var að veiða 42.

Á vef Umhverfisstofnunar kemur fram að með því að veiða meira á svæðinu yrði höggvið stórt skarð í stofninn á svæðinu, og því var ákveðið að stöðva veiðar þar alfarið. - bj

 

Senda grein


Hér getur þú tekið þátt!


Þetta vefsvæði byggir á Eplica