24.8.2010

Um næstu helgi verður haldin alþjóðleg ráðstefna í Háskóla Íslands til heiðurs Sigfúsi Johnsen jöklafræðingi

Ráðstefnan er haldin í tilefni af 70 ára afmæli Sigfúsar 

Á föstudag og laugardag flytja íslenskir og erlendir jarðvísindamenn erindi í Hátíðasal Háskóla Íslands. Aðgangur er öllum heimill en fyrirlestrarnir verða fluttir á ensku.  Á sunnudag verður svo sérstök dagskrá fyrir almenning í fyrirlestrasalnum í Öskju, Náttúrufræðahúsi HÍ undir yfirskriftinni; ,,Leyndardómar Grænlandsjökuls: Vitnisburður ískjarna, setlaga og jökla um loftslagsbreytingar og eldgosasögu."   Dagskrá sunnudagsins 29.08 má sjá hér fyrir neðan.

 Sigfús Johnsen eðlis- og jöklafræðingur við Hafnarháskóla er einn af kunnustu vísindamönnum Íslendinga um þessar mundir. Hann hefur starfað að borunum og rannsóknum á ískjörnum úr Grænlandsjökli um 40 ára skeið og hafa þær skilað einstökum niðurstöðum um loftslagssögu norðurhvels jarðar sl. 125.000 ár.

 Ráðstefnan er skipulögð í sameiningu af Háskóla Íslands, Kaupmannahafnarháskóla, Veðurstofu Íslands og Dansk-íslenska félaginu

Dagskrá:

Sunnudagur 29. ágúst. Fyrirlestrasalurinn í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskólans
Leyndardómar Grænlandsjökuls: Vitnisburður ískjarna, setlaga og jökla um loftslagsbreytingar og eldgosasögu
13:30-13:40 Setning
13:40-14:10 Sigfús Johnsen: Ískjarnaboranir á Grænlandi og veðurfarssaga sl. 150,000 ára
14:10-14:40 Þorsteinn Þorsteinsson: Punktar frá Grænlandsborunum
14:40-15:10 Jón Eiríksson: Sjávarsetlög, hafstraumar og loftslag við Ísland á umliðnum öldum
15:10-15:30 Kaffihlé
15:30-16:00 Áslaug Geirsdóttir: Vitnisburður vatnasets um veðurfar á Íslandi eftir ísöld
16:00-16:30 Karl Grönvold og Annette Mortensen: Eldgosasaga Íslands rakin í ískjörnum úr Grænlandsjökli
16:30-17:00 Guðfinna Aðalgeirsdóttir: Framtíð Grænlandsjökuls í hlýnandi loftslagi



Senda grein


Hér getur þú tekið þátt!


Þetta vefsvæði byggir á Eplica