Allar-myndir-af-Canon-S95-mars-2011-166

23.6.2011

Alcoa Fjarðaál veitir Vinum Vatnajökuls 80 milljóna króna styrk

-Fénu verður varið til styrktarverkefna Vinanna

 

Þriðjudaginn 21. júní síðastliðinn veittu Vinir Vatnajökuls – hollvinasamtök Vatnajökulsþjóðgarðs viðtöku 700 þúsund dollara styrk frá Alcoa Fjarðaáli eða rúmlega 80 milljónum íslenskra króna.  Athöfnin fór fram í Snæfellsstofu á Skriðuklaustri.  Áður hafði Fjarðaál veitt samtökunum tvo styrki að upphæð um 145 milljónir króna,  þannig að samtals eru styrkir fyrirtækisins til þeirra komnir yfir 200 milljónir króna á þremur árum.  Fyrirtækið hyggst styrkja Vinasamtökin enn frekar á næstu árum.  Fjármunirnir fara til margskonar verkefna sem tengjast kynningu, fræðslu og rannsóknum í og við Vatnajökulsþjóðgarð.  

Eitt af styrktarverkefnum Vinanna er gerð og uppsetning á vörðum sem marka aðkomu að þjóðgarðinum.  Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhjúpaði fyrstu vörðuna, við mörk þjópðgarðsins á Fljótsdalsheiði og flutti stutt ávarp.  Samskonar vörður verða settar upp víðar við mörk þjóðgarðsins.  Að lokinni afhjúpun varðanna á heiðinni afhenti Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, Bjarna Daníelssyni varaformanni stjórnar Vina Vatnajökuls styrkinn í Snæfellsstofu, nýrri gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs.  

Við afhendingu styrksins sagði Tómas Már að það væri ljóst að stórt alþjóðlegt fyrirtæki eins og Alcoa hefði mikil áhrif á íslenskt umhverfi og samfélag.  Það væri stefna fyrirtækisins að vinna í anda sjálfbærni og frá upphafi hefði það verið alveg skýrt að Alcoa hefði áhuga á að styrkja uppbyggingu þjóðgarðs norðan Vatnajökuls.  Sérstök viljayfirlýsing þar að lútandi var undirrituð árið 2002, árið sem Alcoa hóf könnun á hagkvæmni þess að reisa álver á Reyðarfirði. Tómas sagði að það væri fyrirtækinu mikils virði að taka þátt í að efla stærsta þjóðgarð Evrópu, sem mun um ókomin ár laða að sér ómældan fjölda innlendra sem erlendra ferðamanna.

Aðrir sem tóku til máls voru Kristveig Sigurðardóttir, formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs, umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, Paula Davis, framkvæmdastjóri  Alcoa Foundation og Bjarni Danielsson, varaformaður stjórnar Vina Vatnajökuls.

Vatnajökulsþjóðgarður nær yfir rúmlega 13 þúsund ferkílómetra lands, allt frá suðurströnd Íslands norður í Öxarfjörð.  Jökulsárgljúfur, Lakagígar og Skaftafell  eru innan þjóðgarðsins ásamt mörgum öðrum náttúruperlum Íslands.  Það voru fulltrúar allra byggðarlaga sem liggja að garðinum sem lögðu hönd á plóginn við stofnun Vina Vatnajökuls.  Samtökin hafa það að markmiði að afla fjár til styrktar rannsóknum, kynningu og fræðslu í þjóðgarðinum og næsta nágrenni hans og stuðla að samspili þjóðgarðsins og nágrannabyggðarlaga hans.

Senda grein


Hér getur þú tekið þátt!


Þetta vefsvæði byggir á Eplica