"Hjörleifur setur Vatnajökulsþjóðgarð á heimskortið"

Umsögn Tryggva Felixsonar um Leiðsögn um Vatnajökulsþjóðgarð

Eftirfarandi umsögn um nýútgefna bók Vina Vatnajökuls, Leiðsögn um Vatnajökulsþjóðgarð, má lesa á vefsíðu Tryggva Felixsonar, ráðgjafa hjá Norðurlandaráði og fyrrum framkvæmdastjóra Landverndar.

"Það er ekki orðum aukið; Hjörleifur Guttormsson er ”andlegur faðir” Vatnajökulsþjóðgarðs. Það var í kjölfarið á þingsályktunartillögu hans að hugmyndin um Vatnajökulsþjóðgarð byrjaði að fá meðbyr. Ég var á ráðstefnu Landverndar á Kirkjubæjarklaustri árið 2000 þar sem þáverandi umhverfisráðherra tilkynnti að ríkisstjórnin væri tilbúin að fylgja ráðum Hjörleifs og leggja upp í þá vegferð að stofna Vatnajökuls-þjóðgarð, stærsta þjóðgarð Evrópu. Átta árum síðar var þjóðgarðurinn formlega stofnaður. Og nú kemur kóróna á verkið, bók   Hjörleifs „Leiðsögn um Vatnajökulsþjóðgarð” sem var að koma út.                              

Bókin er að stærð og formi handbók sem taka má með í ferðalagið. Vatnajökulsþjóðgarður er afar stór og þess vegna skiptir höfundur þjóðgarðinum upp í svæði. Lýsingar á  einstökum  svæðum eru gagnorðar og draga fram það helsta, og þær kveikja áhuga á að komast á staðinn og upplifa það sem Hjörleifur lýsir. Þá hefur bókin kafla með almennum fróðleik um plöntur, dýralíf og jarðfræði sem er gagnleg til að skilja samhengið í gangverki náttúrunnar. Bókin setur hlutina í sögulegt samhengi, kemur inn á þjóðfræði og útskýrir hlutverk þjóðgarða. Þannig eykur hún skilning á gildi og nauðsyn náttúruverndar, og setur íslenska náttúruvernd  í stærra samhengi. Ljósmyndirnar eru góðar og kort eru vönduð. Þetta er hið gagnlegasta og vandaðasta rit sem setur Vatnajökulsþjóðgarð ekki bara á Íslandskortið, heldur einnig á heimskortið. Já ég segi heimskortið, því bókin kemur út samtímis á þremur tungumálum; íslensku, ensku og þýsku. Þetta er ómetanlegt framlag til að efla útvist og ferðalög, og auka skilning á mikilvægi náttúruverndar.

Þakka þér fyrir Hjörleifur fyrir þess góðu bók. Og takk til Vina Vatnajökuls sem fjármögnuðu þetta góða framtak. Ég hlakka til að leggja upp í ferð um Vatnajökulsþjóðgarð með bókina í pokanum."


Senda grein


Hér getur þú tekið þátt!


Þetta vefsvæði byggir á Eplica