Vatnajökulsþjóðgarður
Vatnajökulsþjóðgarður er stærsti þjóðgarður Evrópu. Flatarmál hans er um 13.600 ferkílómetrar eða rúm 13% af Íslandi. Ríflega helmingur þjóðgarðsins er jökull og þar er að finna samvirkni jarðelds, jarðhita og myndunar jökla, landmótun jökla og vatnsfalla. Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður 9. júní 2008 en markmiðið með stofnun og rekstri þjóðgarðsins er að vernda Vatnajökul og landsvæði honum tengd
Einstakur þjóðgarður á heimsvísu
Innan Vatnajökulsþjóðgarðs eru fjölmargar söguslóðir og einstaklega margbrotið landslag sem geymir margar ómetnalegar náttúruperlur. Vatnajökulsþjóðgarður hefur mikla sérstöðu í náttúrufarslegu tilliti í heiminum, m.a. vegna þess að þar eru átök elds og ísa enn í fullum gangi.
Til að fræðast frekar um Vatnajökulsþjóðgarð bendum við á vefsíðu þjóðgarðsins.

