Af skrímslum, útilegumönnum og öðrum verum
Rík hefð er fyrir þjóðsögum á Íslandi og þær hafa flestar borist á milli kynslóða í munnlegu formi. Sumar þeirra hafa töluvert sögulegt gildi um ýmsar persónur og staðarhætti og gaman er að sjá sjá landsfræga drauga koma fyrir í hinum og þessum sögum á borð við Eyjasels-Móra og Þorgeirsbola, þó Vinirnir hengi sig ekki upp á að allar séu sögurnar dagsannar.
Hér til vinstri má finna sögur úr Vatnajökulsþjóðgarði og nágrenni hans um útilegumenn, drauga, skrímsli og fleiri verur en Lagarfljótsormurinn, frægasta skrímsli Íslands er einmitt nágranni þjóðgarðsins.

