Ljósmyndir úr Vatnajökulsþjóðgarði
Hér er yfirlit nokkurra ljósmynda úr Vatnajökulsþjóðgarði sem sjá má á vefnum. Sigurgeir Sigurjónsson hefur tekið ljósmyndirnar.
Dettifoss
Dettifoss er öflugasti foss Evrópu. Hann er 44-45 m hár og um 100 m breiður.
Fjallsjökull

Fjallsjökull teygir sig niður úr Öræfajökli að austanverðu.
Ásbyrgi

Ásbyrgi er stórkostleg náttúrusmíð með allt að 100 m háum hamraþiljum, sem hækka eftir því, sem innar kemur í gljúfrið.
Jökulsárgljúfur

Álfkirkjan í Jökulsárgljúfrum er listasmíð úr stuðlabergi.
Kverkfjöll

Kverkfjöll eru mikil megineldstöð í norðurbrún Vatnajökuls og þriðji hæsti fjallbálkur landsins á eftir Öræfajökli og Bárðarbungu.
Skaftafell

Þjóðgarðurinn í Skaftafelli var stofnaður 15. september 1967 og var þjóðgarðslandið þá um 500 km2 að flatarmáli.
Askja

Askja er sigdæld í megineldstöðinni Dyngjufjöllum og miðja eldstöðvakerfis með mörgum gosspungum, m.a. Sveingjárgígaröðinni.

